Preview Mode Links will not work in preview mode

MISTERÍA

Feb 25, 2020

Þann 26. Janúar árið 2013 mætti Elisa Lam, 21 árs gamall nemi, til Los Angeles eftir að hafa ferðast einsömul frá sínum heimabæ í Kanada. Hún lofaði fjölskyldu sinni að láta heyra í sér daglega en einungis nokkrum dögum síðar braut hún það loforð. 


Jan 8, 2020

Á aðfangadagskvöldi árið 1945 var Sodder fjölskyldan að gera sig klára fyrir svefninn. Allir voru spenntir fyrir jóladagsmorgni og að loknum leik eftir aðeins lengri vöku en vanalega lögðust börnin til hvílu. Þessi jólanótt yrði þó sú síðasta sem fjölskyldan öll myndi eyða saman. 


Dec 12, 2019

Að kvöldi 19. maí 2008 var Glenn Hollinshead á gangi með félaga sínum þegar þeir hitta fyrir konu sem var að leita að tvíburasystur sinni  sem lent hafði á sjúkrahúsi. Hún spurði hvort þeir vissu um gistihús í nágrenninu en Glenn sá aumur á konunni og bauð henni að koma heim til sín....


Nov 27, 2019

Þann 23. janúar árið 1959 hélt Yuri Yudin af stað í ævintýraför ásamt vinum sínum að Otorte fjalli í Rússlandi. Tilgangur ferðarinnar var að sigrast á þessari erfiðu leið og vinna sér þannig inn hæstu gráðu í fjallgöngum. Þegar fimm dagar voru liðnir af ferðinni neyddistt Yuri hins vegar...


Nov 19, 2019

Þann 23. mars var Bradley fjölskyldan í siglingu á skemmtiferðaskipi um karabískahafið. Um kvöldið skemmti fjölskyldan sér saman en þegar foreldrarnir héldu til hvílu skemmtu Amy og bróðir hennar Brad sér áfram og komu heim síðar um nóttina. Þau spjölluðu saman þar til Brad ákvað að...